19.12.2016 | 11:08
Búið að benda á þetta ítrekað.....
Ég tek heilshugar undir þessa tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. Það eru ýmsir búnir að benda á þetta undanfarin ár, þar á meðal vegamálastjóri og undirritaður.
Sem tæknistjóri EuroRAP öryggisúttektar vega, hef ég ekið þúsundir kílómetra um allt land og tekið myndir og videó af vegakerfinu. Við þær úttektir sér maður hvernig vegirnir eru að molna niður og ástandið hefur farið versnandi ár frá ári.
Í sumar gerði ég sérstaka úttekt á helstu vegum í uppsveitum suðurlands fyrir 6 sveitarfélgög vegna þess álags sem aukin ferðamennska hefur haft í för með sér. Á sumum stöðum er ástandið skelfileg og nokkrir vegir nánast ónýtir. Lítið sem ekkert bólar á viðhaldi eða úrbótum.
Ástandið er orðið svo slæmt, að yfirborðsmerkingar eru horfnar, mikið brotið úr könntum og slitlag að molna í sundur. Eftir því sem þetta ástand varir lengur verður margfalt dýrara að lagfæra síðar.
Það er algjörlega ljóst, að hér þarf að gera stórátak eins og SA bendir á. Framlög til viðhalds vega þarf að auka verulega næstu árin til að snúa þessari þróun við og koma vegakerfinu í það horf sem því ber sem æðakerfi samfélagsins.
Ólafur Guðmundsson.
Tæknistjóri EuroRAP á Íslandi.
![]() |
Hætta á að stórir hlutar eyðileggist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Kristinn Guðmundsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.